Þá er ég komin til New York og búin að hreiðra um mig rétt fyrir
tíu um morgun á kaffihúsi á Lower East side Manhattan með tölvuna
mína og sojalatte. Ég skidi við sambýlismenn mína sofandi en ég bý
í 30 fm íbúð ásamt tveimur mönnum og tveimur eldgömlum norskum
skógarköttum.
Mér var eilítið brugðið þegar ég gekk inn í íbúð vinar míns. Síðast
þegar ég var hér í New York keyrðum við um á Limmó og gistum á
Donald Trump. Nú sefur hann milli tveggja katta innan um spíturusl,
kattarhár og fatahrúgur. Smiðurinn sem er að vinna hjá honum sefur
á sófanum sem á vantar lappirnar en ég fann mér auðan blett á
rúminu við hliðina á restinni af heimilisköttunum.
Við Jo lenntum á föstudagskvöld en við gistum hjá vini hennar sem
býr hjá Columbía háskóla. Ég fékk að gista þar fyrsta kvöldið af
því vinur hennar var ekki heima. Daginn eftir fengum við okkur
æðislegan lunch og gengum svo niður í Harlem til að skoða lífið þar
og byrgja okkur upp af mac snyrtivörum. Ég held að Guðbjörg vinkona
verði ánægð með mig þegar ég sýni henni næst oní snyrtbudduna.
Komin með allt pro dótið sem hún er búin að mæla með. Á
laugardagskvöldið ferjaðum við Jóhanna farangurinn minn hingað
niður eftir og kíktum með vini mínum á lífið. Anddyrið ilmaði af
kannabis og heyra mátti öskur og læti innan úr íbúðum, greinilega
klassabygging.
Ég var ekki búin að jafna mig á sjokkinu eftr að hafa séð íverustað
minn þegar við fórum í partí til 19 ára stúlkna sem titruðu allar
af kókaínneyslu, þær öskruðu hver oní aðra spastískar í framan og
það var ekki hægt að skilja orð af því sem þær sögðu því þær töluðu
svo hratt. Það var frekar súrelískt að sjá Jóhönnu sætu góðu sem
drekkur ekki einu sinni sitja í sófanum og reyna að eiga einhver
vitræn samskipti við þessa kókhausa. Mér leist ekki alveg á blikuna
og spurði vin minn hvort að þetta væru vinir hans. Hann hristi
höfuðið og sagði að þetta væru leikföngin hans og færðum okkur yfir
á flottan veitingastað þar sem við hittum buisnespartnerinn hans og
kærustuna hans. Það var frábært fólk og við skemmtum okkur
konunglega. Við færðum okkur svo yfir á Buddhabar sem er frábær
staður. Jo fór snemma heim og vinur minn líka þar sem hann var
orðinn of ölvaður til að vera innan um fólk.
Ég varð eftir með hinum og endaði grenjandi úti á götu í Grenich.
Annar vinur minn frá LA hringdi í mig til að segja mér að hann gæti
ekki hitt mig því hann þyrfti að fara í ferðalag. Ég veit ekki
alveg af hverju mér fannst það svona rosalega sorglegt en stundum
er maður bara ekki nægilega vel fyrirkallaður. Buisnespartnerinn
keyrði mig svo heim til vinar míns og ég komst ekki inn þar sem ég
var með vitlausa lykla. Ég tók þvi leigubil á næsta hótel.
Gærdagurinn fór í það að hanga með innfæddum á kaffihúsum og
veitingastöðum. Við byrjuðum á þvi að fara í Brunch. Hér er það
þannig í Brunch á sunnudögum að maður kaupir brunch á fimmtán
dollara og fær 3 kokkteila fría með. Svo var bara setið og drukkið
og skipt um umhverfi annað slagið. Ég er náttúrulega svo léleg í
drykkjunni að ég sat með eina bloody mary allan daginn og þambaði
vatn en svona eru sunnudagarnir hérna enda troðið á öllum
kaffihúsum og veitingastöðum.
Nú ætla ég að fara og hitta Jo inn í Greenich. Við ætlum að vera
túristar og far í Sex in The City túrinn. Meira girly getur það
ekki orðið.
Þangað til næst.

Ég verð reglulega með report á meðan ég er
hérna.