The_dirty_journalist
Nýtt blogg!
Blessuð sé minning hennar
berast? Því miður vissi ég fyrir löngu að þeirra myndi verða
von. Svo oft hef ég setið og dásamað lífið og reynt að mála
bærilega mynd af því í augum manneskju sem treysti sér ekki
til að lifa því. Hún reyndi hins vegar að sýna mér fram á
hvað fíknin væri sterk en ég gat ekki skilið hennar heim og
hún ekki minn þótt við ættum líka óendanlega margt
Það var ömurlegt augnablik þegar ég gerði mér grein fyrir því að
það var sama hvernig ég málaði myndina fyrir hana og við fylltumst
báðar gleði og von. Myndin hvarf alltaf jafn óðum fyrir henni. Hún
sá ekki hversu falleg, hæfileikarík, vel gefin, skemmtileg og
gefandi hún var sem gat hreinlega verið óþolandi á stundum. Það gat
enginn hjálpað henni nema hún sjálf en henni fannst hún ekki vera
þess virði. Þegar lífið er einskis virði og ekki maður sjálfur og
Ég vonaði þegar dóttir hennar kom í heiminn að þá myndi hún öðlast
nægilegan lífsvilja og ljós til að sigrast á fíkninni. Fíknin er
Nú er það orðið. Hinni eilífi baráttu við fíknina er lokið. Hún er
þér líði betur þar sem þú ert núna. Fyrir mér verður þú alltaf það
Allt og ekkert!
fyrir framan nýja risasjónvarpið mitt. Ég fór í BT til að kaupa
eitthvað ódýrt en endaði á breiðtjaldi sem tekur hálfa stofuna. Það
er ekki eins og það sé horft mikið á sjónvarp hér á þessu heimili.
Við erum yfirleitt í tölvunni ef við erum heima. Hvað maður gerir í
tölvunni er mér svo sem ráðgáta. Svona þegar ég hugsa til baka þá
er maður mest megnis að vafra milli síðna í hálfgerðri dáleiðslu,
Ég fór í Batukatíma áðan og ég verð að breiða út boðskapinn.
Virkilega hressandi og skemmtileg hreyfing og maður fílar sig sem
algjöra senjórítu og Umu Thurman í Kill Bill til skiptis. Svo endar
tíminn á smá thai chi til að róa líkama og huga. Virkilega
Ég ákvað að blogga bara um ekki neitt. Það er eina leiðin til að
halda sig við efnið svona þegar maður vinnur við að skrifa alla
daga. :)
Nei sko, ný færsla!
fór ekki í ræktina í morgun eins og ég ætlaði mér. Ég fór heldur
ekki í ræktina eftir vinnu eins og ég ætlaði mér. Ég horfði ekki á
fréttirnar eins og ég ætlaði mér, ég setti ekki í vél eins og ég
ætlaði mér og klukkan er orðin átta. Það eina sem ég er búin að
gera síðan ég kom heim úr vinnunni er að fara úr skónum og í
þægilegri föt og stara á tölvuskjá. Ég ætlaði nefnilega að vera svo
rosalega dugleg og skrifa fyrir blaðið en ég er ekki búin að skrifa
Annars var helgin fín. Fór á Nick Cave tónleikana á laugardaginn
sem var náttúrulega frábært. Ég á svo góðan vin sem var svo
hugulsamur að kaupa tvo miða. Ég launaði honum það með því að læsa
mig úti og þurfa að gista á sófanum hjá honum. Held samt að ég hafi
ekki verið neitt svakalega fyrir. Hann þurfti alla vega ekkert að
nota sófann akkúrat á meðan hann svaf. :) Síðan var bara rólegur
sunnudagur sem fór í að heimsækja ömmu og fara í bíó. Fór á
bíómyndina Börn sem er að mínu mati fyrsta almennilegan bíómyndin
sem gerð hefur verið á Íslandi. Loksins hafði einhver fyrir því að
eyða tíma í handritið en það hefur verið einstalega ábótavant í
íslenskri kvikmyndagerð að mínu mati því góð myndataka stendur ekki
fyrir sínu ein og sér ef handritið er lélegt og leikurinn
Annars er dagurinn ekki búinn. Þannig að ég hef enn þá val um að
vera tapari eða vinnari. Ég ætla því að skella mér í sund fyrst
skriftirnar eru ekki að gang upp. Ég ætla hins vegar ekki að gera
nágrönnum mínum það að setja í vél á þessum tíma dags. Mér skilst
að það sé jarðskjálfti á neðri hæðinni í hvert sinn sem við þvoum
Þessi færsla ver sérstaklega skrifuð fyrir góðan vin sem mér skilst
að komi reglulega í heimsókn. Þú veist hver þú ert. ;)
SWEET CALIFORNIA!
búum í geggjuðu húsi hjá Erlu vinkonu okkar. Ég var einmitt að
klára grein fyrir Hús og híbýli um húsið hennar og Tryggva. Ef þið
getið ekki beðið eftir því að blaðið komi út þá getið þið kíkt á
húsið á www.minarc.com. Fyrir utan að vera einstaklega klár
arkitekt þá er Erla stuðbolti og aftur stuðbolti. það eru þrír
mánuðir síðan að hún átti litlu prinsessuna og hún langhressust af
Við fórum til dæmis út eftir lokun skemmtistaða á Laugardaginn en
hér lokar allt klukkan tvö sem er bara alls ekkert svo slæmt því
það kemur ekki fyrir að dagurinn á eftir sé ónýtur. Alla vega við
keyrðum af stað því við erum svo velskipulagður hópur af tveimur
vitfirrtum stuðboltum og svo JoJo sem drekkur ekki getur keyrt
milli staða og haft vit fyrir okkur hinum. Þetta kvöld þegar við
lögðum af stað út í nóttina enduðum við í afmæli hjá David Spade og
sungum fyrir hann afmælissönginn á íslensku. Það var mjög gaman og
svo tók Lindsey Lohan fyrir okkur lagið í karókí en því miður var
hún rammfölsk ég vona að það hafi bara verið af því hún var drukkin
en svo þurfti Kid Rock að eyðileggja allt með því að hleypa öllu
upp í slagsmál. þannig að við ákváðum að fara snemma í háttinn og
komum við í apótekinu á leiðinni heim og keyptum okkur sígarettur
og hrukkukrem og ég og Erla enduðum í tveggja manna partí út á
verönd sem var bara engu síðra en hitt það var svo mikið fjör hjá
okkur. Daginn eftir sem sagt síðastliðinn sunnudag fórum við svo
niður á Venice að spila strandablak, það var voða gaman. í
gærkvöldi fórum við svo niður á Manhattanbeach að hitta mann sem ég
hitti á myspace og er pródúsent og búinn að gera fulllt af myndum.
Svaka töffari, fertugur með stór tattúú um allan skrokk og algjör
tískuhóra að eigin sögn enda var hann mjög smart. En það var nú
fyrir öllu að hann var skemmtilegur líka og við skemmtum okkur
Á daginn verslum við og förum í allskonar fegrunarmeðferðir. Þetta
er því sannkallað Beverly Hills wife líf sem við lifum hérna. Við
erum búnar að prófa alls kyns meðferðir og erum eins og krakkar í
sælgætisverslun hvað það varðar. Erla býr svo vel að vera með
yndislega konu sem passar börnin og þrífur á daginn að hún getur
verið með okkur í öllu fjörinu. Í kvöld er eitthvað arkitektapartí
sem við förum með þeim í og á laugardaginnn verður svaka partí hér.
Á sunnudaginn förum við svo á Rock Star en þau tóku einstaklega vel
á móti mér sem blaðamanni frá Íslandi ég bjóst ekki við því og fæ
að taka viðtal við Magna á mánudaginn. Dagurinn í dag er bara búinn
að vera vinna hjá mér og nú er ég að bíða eftir stelpunum að þær
komi heim úr pedicure og medicure og klippingu og ég veit ekki
hvað. Í dag bættist við fjórða skutlan hún Lau Lau sem flaug hingað
alla leið frá Saudi Arabíu. Þannig að partíið á bara eftir að
PS: Ég keypti mér geðveika myndavél sem ég fékk senda í dag þannig
að það er aldrei að vita nema ég skelli inn myndum. :) ef ég nenni.
hehe
Ævintýrin gerast enn!
matur hérna, hægt að fá ferskt sushi og girnilega ávexti og
grænmeti út um allt. Núna sit ég og bíð eftir því að komast í
sturtu. það er búið að skrúfa fyrir vatnið þar sem það er víst
verið að gera við eitthvað í byggingunni. Mér tókst því að skíta á
neðri hæðina. Það var búið að taka eitthvað rör í sundur með þeim
afleiðingum að úrgangurinn frá mér fór niður til nágrannans. I
Until next time! ;)
NEW YORK - NEW YORK
tíu um morgun á kaffihúsi á Lower East side Manhattan með tölvuna
mína og sojalatte. Ég skidi við sambýlismenn mína sofandi en ég bý
í 30 fm íbúð ásamt tveimur mönnum og tveimur eldgömlum norskum
Mér var eilítið brugðið þegar ég gekk inn í íbúð vinar míns. Síðast
þegar ég var hér í New York keyrðum við um á Limmó og gistum á
Donald Trump. Nú sefur hann milli tveggja katta innan um spíturusl,
kattarhár og fatahrúgur. Smiðurinn sem er að vinna hjá honum sefur
á sófanum sem á vantar lappirnar en ég fann mér auðan blett á
Við Jo lenntum á föstudagskvöld en við gistum hjá vini hennar sem
býr hjá Columbía háskóla. Ég fékk að gista þar fyrsta kvöldið af
því vinur hennar var ekki heima. Daginn eftir fengum við okkur
æðislegan lunch og gengum svo niður í Harlem til að skoða lífið þar
og byrgja okkur upp af mac snyrtivörum. Ég held að Guðbjörg vinkona
verði ánægð með mig þegar ég sýni henni næst oní snyrtbudduna.
Komin með allt pro dótið sem hún er búin að mæla með. Á
laugardagskvöldið ferjaðum við Jóhanna farangurinn minn hingað
niður eftir og kíktum með vini mínum á lífið. Anddyrið ilmaði af
kannabis og heyra mátti öskur og læti innan úr íbúðum, greinilega
Ég var ekki búin að jafna mig á sjokkinu eftr að hafa séð íverustað
minn þegar við fórum í partí til 19 ára stúlkna sem titruðu allar
af kókaínneyslu, þær öskruðu hver oní aðra spastískar í framan og
það var ekki hægt að skilja orð af því sem þær sögðu því þær töluðu
svo hratt. Það var frekar súrelískt að sjá Jóhönnu sætu góðu sem
drekkur ekki einu sinni sitja í sófanum og reyna að eiga einhver
vitræn samskipti við þessa kókhausa. Mér leist ekki alveg á blikuna
og spurði vin minn hvort að þetta væru vinir hans. Hann hristi
höfuðið og sagði að þetta væru leikföngin hans og færðum okkur yfir
á flottan veitingastað þar sem við hittum buisnespartnerinn hans og
kærustuna hans. Það var frábært fólk og við skemmtum okkur
konunglega. Við færðum okkur svo yfir á Buddhabar sem er frábær
staður. Jo fór snemma heim og vinur minn líka þar sem hann var
Ég varð eftir með hinum og endaði grenjandi úti á götu í Grenich.
Annar vinur minn frá LA hringdi í mig til að segja mér að hann gæti
ekki hitt mig því hann þyrfti að fara í ferðalag. Ég veit ekki
alveg af hverju mér fannst það svona rosalega sorglegt en stundum
er maður bara ekki nægilega vel fyrirkallaður. Buisnespartnerinn
keyrði mig svo heim til vinar míns og ég komst ekki inn þar sem ég
Gærdagurinn fór í það að hanga með innfæddum á kaffihúsum og
veitingastöðum. Við byrjuðum á þvi að fara í Brunch. Hér er það
þannig í Brunch á sunnudögum að maður kaupir brunch á fimmtán
dollara og fær 3 kokkteila fría með. Svo var bara setið og drukkið
og skipt um umhverfi annað slagið. Ég er náttúrulega svo léleg í
drykkjunni að ég sat með eina bloody mary allan daginn og þambaði
vatn en svona eru sunnudagarnir hérna enda troðið á öllum
Nú ætla ég að fara og hitta Jo inn í Greenich. Við ætlum að vera
túristar og far í Sex in The City túrinn. Meira girly getur það
Þangað til næst. :) Ég verð reglulega með report á meðan ég er
Mig langar ekki að vera hæna að gogga í korn
það var gaman. Við létum eins og fífl en það sem mér þykir hvað
eftirminnilegast er að einn af okkur var að koma til landsins úr
námi í Bandaríkjunum og ekki búinn að sjá konuna sína í marga
Hann hefur verið henni trúr því það var greinilega orðið mjög langt
síðan síðast. Það var alveg sama um hvað var verið að ræða,
borgarstyrjaldir, stafsetningu eða umskurð. Alltaf endaði
umræðuefnið á því að vera um kynlíf. Þegar barnabækur voru orðnar
klámfengar benti ég konunni hans á það að hún þyrfti nú að fara að
gera eitthvað í þessu. Ég veit ekki hvort hún hafi misskilið mig
eitthvað því hún leit á mig hin rólegasta og sagði að það væri til
lyf við þessu. Ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að vera því það
kom skelfingarsvipur á manninn. Mér þætti gaman að vita hvaða lyf
En eftir að þessi orð voru látin falla fór maðurinn að tala um hvað
öll dýrin í náttúrunni væru eins. Karlfuglinn væri endalaust að
þenja fjaðrirnar og stígandi þaulæfð dansspor á meðan kvennfuglinn
goggar hinn rólegasti í korn. Ég veit ekki hvort ég gogga í korn en
Annars mæli ég með því að allir fari að búa til börn og mér fyndist
heldur ekkert að því að ríkið borgaði fólki fyrir það. Það vantar
fleiri hausa hérna svo það taki því að setja eitthvað skemmtilegt á
markað. Markhópar á Íslandi eru svo fámennir að veltan er alltaf
eitthvað hrikalegt klink. Bara heim að ríða kæra fólk! BÚA TIL
BÖRN! OG KOMA SVO! já ég veit ég er ekki að standa mig en ég ætla
hvort eð er að eignast þríbura þannig að ég hef alveg nægan tíma.
Ég sendi bara reikning, mig vantar pening!
orðið öflugt. Ég er til dæmis með tvo lögfræðinga á eftir mér sem
hóta mér öllu illu ef ég greiði ekki hið fyrsta höfuðstól,
Best af öllu er að það er verið að rukka mig fyrir ekki neitt.
Annar þessara lögfræðinga rukkar mig um 350 000 kr fyrir heimasíðu
sem var aldrei gerð. Þrátt fyrir það hefur þetta netfyrirtæki sent
mér reikning mjög reglulega í nokkur ár. Nú gengu þeir svo langt að
fara með þetta í lögfræðing. Hitt fyrirtækið sem er farið að
lögsækja mig er endurskoðunarfyrirtæki, sem fyrirtæki mitt hafði
ráðið til þess að sjá um gerð ársreikninga. Þeir vilja að ég greiði
dráttarvexti, lögfræðikostnað og að sjálfsögðu höfuðstól fyrir gerð
Þetta er svoldið sniðugt ég verð nú bara að segja það. Ég get ekki
séð annað en að það hljóti að vera gaman að skrifa reikninga.
Kannski ég skrifi bara nokkra reikninga á hina og þessa og láti
einhvern harðsvíraðan lögfræðing um að rukka þá inn fyrir mig. Það
virðist ekkert þurfa til til þess að fólk geti leyft sér að skrifa
reikning og fara í harkalegar innheimtuaðgerðir og best af öllu er
að það er algjörlega löglegt.
Gugga
Ég sat í stofunni hjá henni og manninum hennar og litli
gríslingurinn þeirra sem þá var þriggja spilaði fyrir okkur á
gítar. Þar var greinilega á ferð á framtíðarpoppari svo mikil var
innlifunin í tónlistinni hjá honum. Þau hjónin horfðu á hann með
Ég dreifti á kaffinu mínu og hlýddi á þau hjónin lýsa í stuttu máli
sögu sinni þar sem mér lá við yfirliði á stöku stað. Ég hef alltaf
verið viðkvæm fyrir sprautum og blóði og frásagnir einar saman geta
verið nóg til að ég ranki við mér á gólfinu. Ég reyndi eftir
fremsta megni að harka af mér og hugsa um eitthvað annað svo ég
myndi ekki detta út í stofunni hjá þessu ókunna fólki sem bráðum
átti eftir að deila með mér lífi sínu í smáatriðum; sársaukafullum
minningum sem þau hefðu helst kosið að gleyma. Þarna sat hún stolt
af syni sínum, manni og heimili og lýsti fyrir mér hvað hún væri
þakklát fyrir að fá að lifa og hvað hún hafði verið djúpt sokkin og
haldið sig ekki eiga neina von. Það var erfitt að ímynda sér þessa
stoltu blómlegu móður grindhoraða með bauga og sprautu í hendinni
og ég var innilega glöð fyrir hennar hönd að standa uppi sem sá
Því miður fékk ég að sjá hana ljóslifandi fyrir framan mig án
hjálpar frásagna og ímyndunarafls með nálina í handleggnum í
þættinum Kompás síðustu helgi. Ég varð að slökkva því ég gat ekki
horft. Þessi sjón var ömurlegri en ég hafði nokkurn tíman getað
ímyndað mér. Ég vona svo innilega að hún finni hjá sér styrk og
vilja til að snúa aftur til lífsins og sonar síns. Ég veit líka að
ef hún snýr ekki aftur fljótlega þá á hún ekki langt eftir. En þótt
útlitið sé svart þá má ekki afskrifa neinn fyrr en yfir líkur.
Komdu aftur Gugga, þú ert allt of góð fyrir þetta helvíti sem þú
býrð í, ekki fara frá okkur strax.
Vinir óskast!
prófíl á Myspace og Minn Sirkus. Ég held að þetta gangi út að safna
vinum eins og frímerkjum ég er ekki búin að átta mig á þessu enn
þá. EN VILTU VERA MEMM? :) http://www.elinarnar.minnsirkus.is
http//www.elinarnar.myspace.com
Ég er að breytast í trukkalessu!
í hádeginu og tók þvílíkt á. Nú er mánaðartímabilinu með
einkaþjálfaranum lokið og við vorum settar í liðleika og
Mér til mikillar mæðu er ég ekki búin að léttast mikið en hins
vegar fannst mér sláandi hvað ég er orðin sterk. Ég er alveg með á
hreinu að þessi einkaþjálfari er að reyna að breyta mér í
trukkalessu því hann lætur mig alltaf taka svo rosalega þungt á
meðan hann er alltaf að létta á Nínu. Ég fór yfir 100 kíló í einu
En svo er opið hús í kvöld hér á Bergstaðastrætinu hjá okkur Nínu
og allir þeir sem eru góðir vinir okkar og finnst við skemmtilegar
eru velkomnir. Við ætlum að hafa það huggó og drekka hvítvín og
borða snakk og taka á móti gestum og gangandi með hlýju og bros og
GLEÐILEGA PÁSKA ÖLL SÖMUL!
Hefði valið kvennabúr!
ég las um Tyrkjaránið sem barn í barnaskóla. Ég sá það fyrir mér í
hryllingi ef einhverjir Tyrkir myndu ráðast hingað inn í landið og
nema mig á brott og henda mér í kvennabúr. Það fanns mér vera
Eftir nánari umhugsun og spjall við góðan vin minn í dag þá held ég
að þetta hafi nú bara alls ekkert verið svo slæmt. Hér bjó fólk í
torfkofum, lúsugt og ógeðslegt og varla læst og hýrðist í holum
sínum yfir blásvartan og kaldan veturinn allir ofan í öllum innan
um búkhljóð og óþef. Kvennabúr í Tyrklandi voru hins vegar hallir
með lúxusbaðaðstöðu, nægu plássi og félagsskap auk bóka og
heilmikillar menntunar en þess var krafist að konur í kvennabúrum
Svei mér þá, ég hefði ekki verið lengi að hugsa mig um. :) Það
jafnast ekkert á við bað og góða bók og frekar hefði ég viljað sofa
hjá hreinum Tyrkja en lúsugum illa þefjandi kotbónda.
Froða sem fer sér að voða!
ég var að spá. Ég og vinkonur mínar áttum frábæra kvöldstund á
Ítalíu þar sem við deildum nokkrum réttum og höfðum það notalegt
með eitt það versta rauðvín sem ég hef smakkað. En það er alltaf
eitthvað gott í öllu og þrátt fyrir það að vínið hafi verið vont
gengum við út með bros á vör því við þurftum ekki að borga fyrir
Svo fórum við á Óliver og bjuggumst við að geta valið úr sætum þar
sem klukkan var bara tólf en það var nú aldeilis ekki. Öll borð
voru tekin og staðurinn var þjappaður. Við gengum nokkrar hringi og
reyndum að hrekja fólk frá borðunum sínum með ýmsum ráðum. T.D. með
því að stilla okkur upp, við álitlegt borð, og reka duglega við
mjög reglulega en fólk sat bara sem fastast. Skil ekkert í þessu
liði. Svo sáum við einn einmana útlending sem sat við eitt af
borðunum við vegginn hjá barnum og við ákváðum að planta okkur hjá
honum og flæma hann burt af borðinu með öllum mögulegum ráðum. En
hann var svo glaður þegar við hlömmuðum okkur hjá honum að við
hættum snarlega við. Þetta var hinn ljúfasti drengur sem þekkir
En þrátt fyrir góðan félagsskap og höfðinglegar veitingar frá
einhverjum mönnum sem voru alveg óðir í að kaupa handa okkur drykki
þá fann ég mig ekki alveg þarna inni. Ég bara skil ekki svona staði
og var orðin frekar þreytt á að öskra í eyrað á næsta manni til að
rembast við að eiga í einhverjum samræðum. Fólk tengir ekkert inn á
svona stöðum nema með því að vera sauðdrukkið á trúnó inni á
klósetti. Það sást nú svart á hvítu þegar Hnakkamellan reyndi að
gera skemmtilegan þátt á skemmtistöðum Reykjavíkurborgar. Það var
nú aldeilis gaman að hlusta á HÆ hvað segirðu? Er ekki geðveikt
gaman hérna? í hálftíma. En svona er það. Mér fannst þetta einu
sinni æðislegt. Við breytumst öll með árunum sem betur fer. :)
ENDURSKOÐENDUR ÞURFA MEIRA AÐHALD!
fyrirtæki í það verk að sjá um að gera og skila skattframtölum
fyrir fyrirtæki í sinni eigu og þetta virta fjármálafyrirtæki
rukkar þig um stórar fjáhæðir fyrir „veitta þjónustu“ en hefur ekki
teiknimyndakonsept sem ég hef nú unnið að þróun á og fjármögnun
síðan árið 2002. Fyrir tveimur árum síðan leitaði ég aðstaðar
endurskoðendafyrirtækis um að sjá um að gera ársreikninga og öll
á því að senda reikninga fyrir veitta þjónustu en þeir hafa hins
vegar ekkert verið að flýta sér að skila inn framtölunum til
að hringja inn til þessa ákveðna fyrirtækis út af þessum framtölum
yfir tveggja ára skeið en ég næ sjaldnast sambandi og hef þurft að
leggja inn fjölda skilaboða. Ef ég næ sambandi við viðkomandi
endurskoðanda sem sér um mín mál þá segist hann hafa látið mig hafa
bið hann um að ganga frá þessu því það eru engin framtöl hjá
Skattstjóra segist hann ætla að ganga í málið og ég treysti því
þangað til næsta gjaldþrotabeiðni kemur inn um lúguna frá
Tollstjóra. Þá endurtekur leikurinn sig; Endurskoðandinn er aldrei
við og svarar engum skilaboðum og segir aftur að hann hafi látið
fyrirtæki, fékk þau og fór með þau niður til Skattstjóra og talaði
svo við Tollstjóra. Þegar ég sat hjá tollstjóra þá mætti ég miklum
skilningi og hann sagði að ég væri ekki sú eina sem þjáðist fyrir
það ferli sem komið væri gang hjá Héraðsdómi. Hann sagði mér að ég
væri í vondum málum og þyrfti að mæta fyrir Héraðsdóm og að hann
skildi ekkert í því að allt þetta fólk sem treysti endurskoðanda
til að sjá um þessi mál fyrir sig en þarf svo að horfast í augum
við gjaldþrotahótanir og áætlanir upp á milljónir frá
skattayfirvöldum vegna glapa í starfi hjá endurskoðendum láti það
bara yfir sig ganga án þess að segja orð opinberlega.
ENDURSKOÐENDUR ÞURFA AÐHALD EINS OG ALLIR AÐRIR OG EF ENGINN SEGIR
og ég hafðu endilega samband við mig hérna í Hafa samband. Það er